kraftmiklir bílar

Það er alltaf misgott að lesa svona fréttir,  Það er eitthvað sem þarf að gera í svona málum.  Mér finnst að það eigi að hækka aldurinn í 18 ár og setja búnað í bílana sem stillir þá á max hraða. Unglingarnir sem eru nýskriðnir úr ökuskólanum og með nýstraujað skírteini í höndunum eru að kaupa sér allt of kraftmikla bíla að mínu mati.  Og hvaða 17 ára gamlir ökumenn hafa efni á því að staðgreiða svona dúndurbíla?  


mbl.is Stöðvaður á 150 km hraða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Í flestum tilvikum eiga þessi börn ekkert í bílunum. Glitnir, Lýsing og öll þau gæðafyrirtæki eru meira en tilbúin til að hjálpa þessum greyjum að setja sig í milljónaskuldir og bankarnir hjálpa til með vænri slummu af yfirdrætti á bónusvöxtum.

 Reyndar er ég meira á því að setja eigi takmarkanir á vélarstærð og hestaflatölu sem börn meiga aka. Til dæmis við 70hö! Hefur verið gert við mótorhjól og nú á bara að fylgja því eftir með að setja samsvarandi reglur með bíla.

Ellert (IP-tala skráð) 28.9.2007 kl. 13:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband